3. fundur
framtíðarnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 15. nóvember 2022
kl. 11:30
Mætt:
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 11:30Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 11:30
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 11:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 11:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 11:30
Halldóra Mogensen, Logi Einarsson, Sigmar Guðmundsson og Steinunn Þóra Árnadóttir boðuðu forföll.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Hildur Sverrisdóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Anna Sigurborg Ólafsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 13:05
Fundargerðir 1. og 2. fundar 153. löggjafarþings voru samþykktar.
2) Heimsþing framtíðarnefnda þjóðþinga Kl. 13:06
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, varaformaður, greindi frá ferð fulltrúa framtíðarnefndar á Heimsþing framtíðarnefnda þjóðþinga sem haldið var 12.-13. október í Helsinki.
3) Fjárhagsáætlun 2023 Kl. 13:08
Nefndarritari fór yfir verkefni framtíðarnefndar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 sem samþykkt var á fundi forsætisnefndar 14. nóvember sl.
4) Starfsáætlun framtíðarnefndar á 153. þingi Kl. 13:20
Nefndarritari fór yfir stöðu mála í starfsáætlun framtíðarnefndar fyrir 153. þing.
5) Önnur mál Kl. 13:20
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir sem stýrði fundinum lagði áherslu á að fundarmenn sem ekki eiga heimangengt boði staðgengla á fund framtíðarnefndar þannig að fundir séu ályktunarbærir.
Fundi slitið kl. 13:00